laugardagur, september 23, 2006

Áskorun (ekki megrun)

Ég tek áskoruninni my fabulous uncle Olaf. Ég legg til freestyle útfærslu á kökunni með eftirfarandi reglum og skilmálum:

1. Kakan skal vera tveggja hæða og hringlótt.
2. Eftirfarandi hráefni verða að koma við sögu: súkkulaði, heimalagað hlaup og marsipan.
3. Þema kökunnar skal vera "skáld".
4. Allir litir þjóðfána vors verða að koma fram.
5. Engin utanaðkomandi hjálp er leyfileg við bakstur kökunnar en þó er keppendum heimilt að leita sér listrænnar ráðgjafar áður en eiginlegur bakstur fer fram.
6. Keppendur skulu velja sameiginlega fulltrúa sem sér um að skipa í dómnefnd, en hún á að samanstanda af tveimur börnum milli þriggja og sex ára og fjórum einstaklingum yfir tvítugu. Þrír fulltrúar skulu vera karlkyns og þrír kvenkyns.
7. Leynd skal hvíla yfir höfundi hvorrar köku um sig þangað til dómnefndin hefur tekið ákvörðun um sigurvegara.

Öfugmæli...
líst vel a þetta og hef ekkert við þetta að bæta nema kanski

oh it's on now, bring it on bi**h
 
Ég legg það nú til að teknar verði myndir af kökunum svo að allir geti notið þessarar keppni! Sjáumst hressar 13.okt ;)
 
Myndir?! Ég krefst þess að fá að minnsta kosti eina sneið af hvorri köku!
 
Pant vera í dómnefnd.
 
ÉG VINN !
 
Ég hlýt nú að vera í dómnefnd!!!
 
Ég verð nú að leggja inn mótmæli hérna. Hvað með aldurshópinn milli 6 ára og 20 ára? Er það fólk eitthvað verra en hin? Eru einhver rök þarna á bak við eða bara huldið fordómar? Já ég er sko alls ekki sátt. Að lokum legg ég til að Karþagó verði lögð í rúst. Magga.
 
Eftir að hafa komið þessu frá mér vil ég leggja til að ég verði í dómnefnd. Fyrir utan að vera kvenmaður, vel að vexti og yfir tvítugt, þá er ég einstaklega kökugóð, sælkeri mikill og núverandi súffleimeistari.

Magga.
 
Blogga Bogga ! (Ég vinn)
 
Þú gætir amk bloggað um keppnina... Segja svona hvernig kökurnar voru og það sem mikilvægara er, hver vann!
 
Vann ekki mamma þín þegar hún kom,hún kann að baka grænar kökur.HEE Áfram með bloggið. Kvitt kvitt.
 
Hey bara að segja þér að föðurbróðir þinn er kennari hér.Já hlýtur að vera vitur maður sem flytur á Kópasker,svo þú veist hvaðan gáfurnar koma.Hee bless.
 
Skrifa ummæli

<< Heim

This page is powered by Blogger. Isn't yours?