mánudagur, desember 11, 2006

Vilborg Kakan Ólafsdóttir, siguvegari og skáld

Komið þið sæl
Þið hafið eflaust verið að halda niður í ykkur andanum eftir myndum og fréttum af kökukeppninni. Þið getið andað núna því hér koma fréttirnar. Ég vann þessa keppni. Ójá, ég vann og hlaut að launum viðurnefnið "Kakan".

Hér koma myndir:


Þetta er vinningskakan. Fyrirmyndin að kökunni var skáldið Ólafur Þórðarson, faðir minn. Fánalitirnir eru kannski ekki augljósir, en inní henni er rautt jell-O og fyrir ofan augun stendur ritað með bláu súkkulaði "sá einn er frjáls" sem mun vera upphafslína úr ljóði eftir skáldið. Marsípanið er svo augljóslega hvítt. Hún var ekki einasta glæsileg á að líta, kakan mín, heldur einnig ákaflega bragðgóð.



Þetta er kakan sem tapaði. Eins og þið sjáið hefur eitthvað farið stórkostlega mikið úrskeiðis við gerð kökunnar. Rauða jell-oið átti að vera hjúpur utan um hana, en það lak allt af, því miður, því hún hefði örugglega verið mun glæsilegri á að líta með hjúpnum. Myndin er af Halldóri Kiljan Laxness.

Ekki nóg með að ég hafi unnið þessa kökukeppni heldur vann ég, viku síðar, ljóðakeppni innan fjölskyldunnar. Yrkisefnið var heiðargæsin (auðvitað, hvað annað). Ég hlaut að launum hádegisverð á VOX með systur minni Jónínu. Hér kemur vinningsljóðið:

Vísaðu mér vegvilltri,
vina mín leiðina.
Gæf ertu gæsin mín,
gjörþekkir heiðina.

Sigurvegarinn kveður, takkfyrirtakk.

mánudagur, desember 04, 2006

Myndatilraun


This page is powered by Blogger. Isn't yours?