sunnudagur, maí 21, 2006

Ég er neðanberi

Fyrir þá sem hafa í hyggju að gerast meðlimir í Neðanbera Klúbbi Hennar Hátignar vil ég segja að reglurnar eru þessar:
Verið í fínum fötum að ofan.
Farið úr ÖLLU að neðan.
Verið loðin og náttúruleg, helst fram úr hófi.
Aldrei, aldrei, aldrei gera þetta í kynferðislegum tilgangi.
Aldrei, aldrei, aldrei vera sexý.
Í þessu ástandi má helst ekki ræða neitt nema pólitík og bókmenntir, ekki má víkja einu orði að lágmenningu og kynlífi.
Alls ekki má undir nokkrum kringumstæðum dilla mjöðmunum á eggjandi hátt.
Blátt bann er lagt við söng. Undantekningar eru þó gerðar við þessa reglu ef um ræðir pólitíska baráttusöngva, en þá á að syngja í megafón, ekki í míkrófón.
Hafið húmor fyrir sérkennilegum ljótleika kynfæra ykkar.

Þið eruð fallegt fólk þegar á heildina er litið.

Góðar stundir.

Öfugmæli...
Bíddu.. þýðir þetta þá að þú sért hætt í sápukreistarafélaginu?
Bídduuuu....
Magga.
 
O nei. Svo aldeilis ekki. Ég er ennþá sekretarí í sápukreistarfélaginu og mun verða þangað til einhver steypir mér af stóli í blóðugri byltingu. En hún verður að vera blóðug.
 
Og ég þarf að búa með þessu...
 
Þú ert spes;)
Kær kveðja,
HeiðarS.
 
Allir ættu að eiga megafón, þetta ætti að vera í lögum. Ég á bara míkrófón.
 
Ég styð alltaf neðanbermennsku ! Áfram Vilborg !!!
 
Enda er ég ekki frá því að ég hafi séð þig rífa þig úr buxunum í fyrrinótt! Eða kannske dreymdi mig það bara.
 
Ráðgáta þessi verður seint ráðin !
 
óóóhóóóhóóóóó hóóóóó

sko dularfulla stefið þið vitið þarna úr myndinni æji þarna með gaurnum þið vitið.
 
Viltu ekki kynna heiðursmeðliminn sérstaklega?
 
Jú Dunda mín, það vil ég gjarnan. Heiðursmeðlimur og næsta formannsefni er engin önnur en Dunda. Hún hefur nú fullkomnað listina að klæða sig úr að neðan á almannafæri, listin felst í að vera í of litlum nærbuxum sem springa svo utan af manni á sérvalinni stundu. Lesið www.dundalitla.blogspot.com til að fræðast meira.
 
Hnegg hnegg, þetta er geðveikt fyndið.
 
Þú er geðveikt brún (að neðan)
 
Húrra fyrir nekt á almannafæri, sérstaklega þeirra af alvarlegu gerðinni!
 
Skrifa ummæli

<< Heim

This page is powered by Blogger. Isn't yours?