miðvikudagur, janúar 03, 2007

Nýtt ár, júhú.

Ég veit að síðasta blogg var og er misheppnað. Sama hvað ég hef reynt þá hefur mér ekki tekist að setja inn myndina af kökunni minni. Nú hef ég brugðið á það ráð að teikna mynd af henni og vonast til að hún birtist eins og hún á að gera.
Fyrst ætla ég samt að segja ykkur hvað ég hef lært í jólafríinu, en það er eftirfarandi:
Því meira sem þú sefur, þeim mun meira getur þú sofið.
Og:
Leti getur af sér leti.
Til allrar lukku þýðir þetta síðara einnig það að dugnaður getur af sér dugnað. Hvernig maður á hinsvegar að snúa sig út úr þessum vítahring veit ég ekki.


Öfugmæli...
Húbba húlla húlla húlla húbba húlla húlla húlla húbba húlla húlla húllalala

Kær kveðja

Magga
 
Ég hef alltaf haldið að þetta væri "Húbba húlla húlla húlla húbba húlla húlla húlla húbba húlla húlla húbbabba" Alltaf lærir maður eitthvað nýtt!
 
Þar sem að bæði "húlla" og "húbba" eru orð af erlendum uppruna þá myndi ég nú halda að þetta væri einhvernveginn svona: Hubba hullah hullah hullah, hubba hullah hullah hullah, hubba hullah hullah... og svo hubbabah eða hullahla eftir smekk, en ég ætla ekki að blanda mér í þær deilur.
 
hljómar svoltið arabískt.
 
Skrifa ummæli

<< Heim

This page is powered by Blogger. Isn't yours?