miðvikudagur, febrúar 09, 2005

I am who I am
Í dag er öskudagur. Í fyrra var ég sérútvaldur nammiútdeilari Drottins. Í dag er ég bara boðberi sannleikans. Nammi skemmir tennurnar og gerir mann feitan.
OF mikið af öllu síðustu daga (nammi, svefni, bollum, baunum, vökum, saltkjöti) hefur valdið einkennilegu kæruleysi í fasi mínu. Til dæmis mætti ég í skólann í dag, í krumpaðri mussu og víðum gallabuxum, með skítugt hár spennt upp með teygju og spennum. Þrátt fyrir ömurlegt útlitið blaðraði ég heil ósköp í þjóðfélagsfræðitíma. Lét eins og ég vissi heilan helling, sem ég vissi þó ekki. En hver veit nokkurn skapaðan hlut? Ég vann þjóðfélagsfræðilegt verkefni í aðferðafræðitíma, þrátt fyrir að kennarinn héngi yfir mér með manndrápssvip, lét það ekkert á mig fá. Og á fyrirlestri um blaðamannverðlaun lét ég hugann reika og skrifaði um ástina í grænbláa stílabók. Greinilegt að ég þarf að fara heim í sturtu, slá mig utanundir og gera mér betur grein fyrir stöðu minni.
Hver er staða mín? Jah, spyrji nú hver fyrir sig.

Öfugmæli...
Vilborg mín, þú sem sendiboði Drottins átt ekki að eiga í erfiðleikum með að svara þessari spurningu! Þú hefur verið valin af Drottni sjálfum að fara með það mikilvæga hlutverk að þjóna karlmanninum í þínu lífi. Ala honum börn og opna fyrir hann bjór.. nú ef þú svo ekki átt karlmann þá skalt þú samkvæmt Drottins kalli þjóna bestu vinkonu þinni í Kiðagils-legg dag sem dimma nátt. Ég hefi talað.
 
Hallo Jörg. Ich weiss nicht ob du meine e-mail adresse gesehen hast, es ist vilborgo@yahoo.de und ich will sehr gerne dass du mir eine e-mail schickst so dass ich mich mit dir unterhalten kann. Ich habe ein aim gemacht, mein name ist Vilborgolafsd, aber egal was ich mache, dich kann ich nicht erreichen ohne e-mail.. Hoffe dass du das hier siehst. Bleib kuhl:)
 
Ertu ekki bara ung kona í blóma lífsins ...
 
Skrifa ummæli

<< Heim

This page is powered by Blogger. Isn't yours?