föstudagur, nóvember 12, 2004

Sweetness
Skrýtið. Meðan ég var í vinnu dauðans, allan síðasta vetur (sem var samt ekkert vinna dauðans heldur fínasta vinna, mér finnst bara svo leiðinlegt að þurfa að vinna fyrir mér) þá hafði ég oft eitthvað að segja á þessu bloggi. En núna eftir að ég byrjaði í Háskólanum, einmitt þegar maður myndi halda að dagarnir í lífi mínu væru æsilegir, fjölbreyttir og spennandi, þá hef ég ekkert að segja. Skrýtið. Á þessu skal verða breyting. Ég get náttúrulega blaðrað um allt og ekki neitt eins og ég hef reyndar alltaf gert...
Ég og Magga fórum á bæjarmálafund í kvöld. Litli pólitíkusarvesalingurinn ég hélt að þetta væru svona fundir eins og eru alltaf af og til í Springfield í Simpson, svona þar sem allir mæta og tala um það sem er að gerast í bænum. Þetta var sem sagt eitthvað öðruvísi. Fámennt en góðmennt, fræðandi og skemmtilegt. Ég er alltaf að komast betur og betur að því hvað mamma hennar Möggu er mikill snillingur. Það er gaman.
Eftir fundinn fórum við Magga á Karólínu og hittum þar Sunnu gömlu. Við ræddum um sjálfstæði og sambandsslit og einhverra hluta vegna vaknaði upp gömul umræða sem ég hélt að ég væri laus við í eitt skipti fyrir öll; umræðan um mögulega sigra mína í heimi samkynhneigðra.. ég veit ekki..
Ég sofnaði í dag. Svaf frá eitt til hálffjögur. Það er syndsamlega gott að sofa á daginn í skammdeginu. Ég elska að vera ekki skyldug til að mæta einhversstaðar á einhverjum ákveðnum tíma. Það þýðir að ég er ekki að klúðra lífi mínu þótt ég sofi í tvo klukkutíma yfir daginn og vaki frameftir á nóttunni. Elskaða, elskaða, elskaða!
Jæja, nú hætti ég þessu samhengislausa blaðri og fer í rúmið.

Öfugmæli...
ÖÖÖÖMURLEGT! ÖLL BJÚTÍFOL KOMMENTIN SEM ÞIÐ SKRIFUÐUÐ ERU HORFIN. HORFIN SEGI ÉG! ÞAU ERU GRAFIN EINHVERSSTAÐAR Á VERALDARVEFNUM OG ÉG FÆ ÞAU ALDREI AFTUR, AAAALLLDDRREII, ÉG GÆTI GRENJAÐ. ÉG ER AÐ GRENJA!>:O
 
Já seisei... ekki gott með ykkur Gústa, en læf gós on...
Annars er ekkert að frétta af mér og ÞESS VEGNA blogga ég ekki! :) Verð í borginni um jólin... vissirðu það?
kv. með smá knúsi
Fanney beib
 
Elskan min, thad er longu vitad mal ad eg se brjaladingur!! En thu kemur og heimsækir mig!!!AHA!...serdeilis glimmrandi, ja eg lofa ther góóóóódu frii til min! si senorita and see you!
 
Skrifa ummæli

<< Heim

This page is powered by Blogger. Isn't yours?